Taka til

Alltaf er það eins, einum manni kennt um. Eða einum flokki. Það komu ALLIR þingmenn og flokkar að þessum óhroða sem hefur dunið yfir landinu síðast liðnu mánuði, mis mikið að vísu. Og það eiga allir að taka til heima hjá sér, koma hreint fram. Og það sem mig langar til að vita er hvernig flokkar ætla að taka á hlutunum á næstu misserum. Að mínu mati fékk ég engar upplýsingar fyrir þessar kosningar, engar sem ég gæti byggt mitt atkvæði almennilega á. Verð bara að treysta og vona.
mbl.is Davíð eyðilagði landsfundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ammæli ammæli

Jæja, hvað getur maður sagt eftir svona helgi. Komum heim eftir að hafa verið í sumarbústað uppi í Borgarfirði til að halda upp á afmæli og slappa pínu af. Og hver átti svo afmæli?? Jú ÉG!!! Varð fertug!!! Og helgin var yndisleg. Dóttirin vildi ekki koma með okkur, vildi heldur vera heima. Enda allt í lagi, hún er nú líka að verða 19 ára. En sonurinn kom með og hafði hann gott af því að komast smá stund frá tölvunni og netinu. Fengum við nokkur sýnishorn af íslensku veðri. Sól og blíða og næstu mínútuna var komið rok og bylur. Yngsta systir kom í heimsókn með sína fjölskyldu og var ég fegin að þau komust heim um kvöldið. Ekki komu margir í afmæliskaffi svo að það var fámennt en góðmennt.

Litla Kongó

Þannig að Litla Kongó er komið til vegna hans. Gott að vita tilurðina.
mbl.is Flúði til Íslands undan þrældómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorry

Það er langt síðan eitthvað hefur af viti komið frá mér hér á þessu bloggi. En síðustu tveir mánuðir hafa ekki verið með þeim bestu sem ég ef lifað en tilveran er bjartari framundan. Líðan sonarins hefur ekki verið góð núna í janúar og febrúar og hefur tilveran litast af því. Þegar það hafa verið góðir dagar hjá honum hefur verið bjart yfir en þegar það syrtir í álinn hefur ALLT dökknað, jafnt hjá honum sem öðrum fjölskyldumeðlimum. Ein meðulin sem hann var á fóru afskaplega illa í hann þannig að það þurfti að taka þau af honum og setja hann á önnur. Lægðirnar voru miklar og hæðirnar einnig. Fór hann t.d. ekki í skólann í tæpa 1 1/2 mánuði samfleytt og ég er enn afar svartsýn á að hann haldist út þessa önn eða verði rekinn vegna fjarvista. Stundum finnst mér að það sé ekki tekið til greina að unglingar séu haldir svona miklu þunglindi, að þetta sé bara syndarmenska hjá þeim til þess að mæta ekki í skólann, að þau neyðist til að hætta í skóla þegar þau eru sem veikust. En það er sannað að janúar og febrúar séu verstu mánuðirnir, þeir dimmustu. Kannski er þetta rugl hjá mér en þetta er mitt álit.

En annars er allt ágætt að frétta, yfirmaður minn er afskaplega velvilja maður, tekur tillit til minna aðstæðna. Ef hann væri einhver annar þá væri ég löngu fokin en ann kannast við svona veikindi og er yndislegur í alla staði, þótt ég sé annars hugar í vinnunni og gleymi stundum hvað er í gangi í kringum mig, þá er bara hnippt og sagt "ertu hérna?" og allt smellur í sinn gír. Margir myndu segja að hann að hann væri þumbari, að hann væri ömurlegur, hann er strangur en réttsýnn. Þá er þetta þus í mér búið í bili, þökk þeim sem nenntu að lesa. Hafið góða fyrir ykkar vináttu. Knús og kossar á línuna.


Erfiður sjúkdómur

Krabbamein er erfiður sjúkdómur, ekki bara fyrir sjúklinginn heldur einnig fyrir alla aðstandendur. Faðir minn greindist með krabbamein og fengum við að hafa hann hjá okkur í 9 ár eftir greiningu. Á því tímabili sem breytingar voru á verri vegu fengum við að vita að hann væri ekki nógu veikur til að leggjast inn á spítala og svo ca 2 árum, 1-2 árum, áður en hann dó var hann orðinn of veikur til að leggjast inn á spítalann. Skrítið en samt satt. Hann greindist víst með annan sjúkdóm sem var ekki meðhöndlaður á sjúkrahúsinu á staðnum þar sem hann bjó. Þeir sjúklingar sem greinast með alsæmer eru sendir á annan stað og erfitt hefði verið fyrir mömmu að heimsækja hann því hún er ekki með bílpróf og strjálar rútusamgöngur á milli þessara tveggja staða.
mbl.is Martröð varð að veruleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annar á undann

Það hefði nú mátt annar maður segja af sér á UNDAN Björgvini og hann heitir Davíð Oddsson!!
mbl.is Björgvin segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég veit

Ég veit því í dag verð ég heima með soninn, ekki hans dagar núna. Og áhyggjur af heilsu hans fara með mína heilsu. Hringaverkun. 
mbl.is Geðheilsa barna versnar í efnahagskreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

afmælisgjöfin mín

Litla afmælisgjöfin mín er mætt. Ein af vinkonum systra minna var skráð í kringum afmælisdaginn minn í mars, en lenti svo í bráðakeisara síðastliðinn föstudag, 16. janúar. Kom þá lítil stelpa í heiminn, 6 merkur og 42 cm. Og tvíburarnir bræður hennar verða svo 1 árs í byrjun febrúar. En annars Magga mín, til hamingju með skvísuna og þú mátt kyssa pabbann frá mér. Og þú færð fjólubláan kjól frá mér.Wink Svona er bara þegar maður er búinn að heita einhverju þótt enginn heyri Kissing


it´s a life!!

Rosalega getur maður verið rólegur í tíðinni miðað við hvernig Ísland er í dag. Er ég svona venjulegur íslendingur sem hugsar bara: "já, þetta reddast ! " á meðan allt er að fara til ands...... ?? Þetta á eftir að verða mjög litríkt ár, það eitt er víst! Stórafmæli, samtals 110 ár hjá okkur hjónunum. Ég fertug, hann fimmtugur og tuttugu ár síðan við hittumst. Við höldum ekki sérstaklega upp á þetta, verðum bara með fjölskyldunni á einhverjum kósý stað. A.m.k. á mínum afmælisdegi. Erum ekki komin svo langt að vera búin að ákveða hvað verður gert á hans degi því við vitum ekki hvar við verðum stödd þá, hér eða þar.

Mig langaði annars bara til að óska ykkur gleðilegs nýs árs (þótt seint sé) og vonandi fer þetta ár ekki ílla með ykkur, þið eigið það ekki skilið.


Gleðileg jól

  • Til fjölskyldu og vina tíunda ég hér,
  • tölu um hugsun og líðandi stund.
  • Óskina færðu nú senda frá mér,
  • árnaðar heilla og þökkin, hún fer,
  • með voninni um gleði á nýársins fund.

 

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband