grunur staðfestur

Þá er minn grunur staðfestur, uppsagnabréfið er komið. Sagt upp störfum frá og með 1. júlí og síðasti starfsdagur er 30. september. Þá verður næsta mál að finna vinnu, því það getur enginn verið atvinnulaus með 2 börn í framhaldsnámi, í húsnæðiskaupum og bílakaupum.

Þetta er í annað skiptið sem ég fæ uppsagnarbréf á minni starfsævi sem byrjaði við 12 ára aldur. Hitt skiptið var í fyrra en það var dregið til baka.

Stjörnuspáin mín í dag :" Þú kemur auga á augljósa leið til að hefna þín einhverjum sem gerði þér rangt til. En besta hefndin er auðvitað að vera alveg skítsama um þetta allt saman."Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband