Sumarfrí 1.

Jæja, þá er blessað sumarfríið byrjað W00t. Hlakka til að slappa af og taka lífinu með ró og ég ætla ekki að byrja leitina að nýrri vinnu fyrr en í síðari hluta frísins Wink. Því ég veit að það þíðir ekkert núna að leita. En ég tek öllum vísbendingum með þökkum Kissing.

Mig hlakkar til að fara norður í brúðkaupið og austur á Neistaflug, á það eina sem er búið að skipuleggja fyrir sumarið Cool,(fyrir utan einu helgina sem við skipulögðum í fyrra en svo kom brúðkaupið upp á þeirri helgi). Restin fær að ráðast eftir veðri og vindum. Bóndinn er víst búinn að skrá sig á golfmótið um verslunarmannahelgina.

Það var skrítið að lappa út úr fyrirtækinu í gær því ég veit ekki hvort ég kem nokkuð til baka þangað. Fer allt eftir því hvort ég verð búin að fá vinnu eða ekki. Talaði við einn yfirmanninn og hann sagði náttúrulega að við starfsmenn höfðum okkar skyldur og allt það en honum fannst nógu erfitt að þurfa að segja upp fólkinu að hann ætlar ekki að standa í vegi fyrir ef fólkið byrjar í annarri vinnu. Þótt það þurfi þess vegna að byrja á morgun Smile. Hann þurfti svo sannarlega að tala, ég var inni hjá honum í um 20 mínútur Wink.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband