Ljósanæturhelgin

Þetta var nú meiri helgin. Á föstudagskvöldinu byrjaði fjörið. Ég var bara búin að vinna í fimm daga í bakaríinu en var samt boðin velkomin í fimmtugsafmæli eigandans. Og makinn líka. En ég fór ein því bóndinn var í aukavinnu og kom rétt á eftir mér um kvöldið, rétt upp úr 11. En það var annsi gaman í veislunni og ágætis mæting. Svo á laugardagsmorguninn fór ég í vinnuna og var mætt klukkan 8. Haukur var þá mættur sem betur fer. Hann opnaði búðina um 8:15 og það var stanslaus biðröð til 11, fékk engan tíma til að fylla á neitt og Haukurinn var sem minn þræll þennan morgun. Á endanum hringdi hann í aðra manneskju og kom hún rétt þegar törnin var að verða búin. Hún átti reyndar að koma um 12 svo að 45 mín til gera ekkert til. Komst ég heim um 12:30, hálftíma seinna en áætlað var.

Seinna um daginn fór ég svo á göturölt og kíkti á sýningarnar hjá Guðmundi og svo hjá Jens og komst svo ekki hjá því að kíkja á bátasafnið. Þar rakst ég á gamlan kunningja, Gunnar SU 20, en með þeim bát fór ég mína fyrstu siglingu til útlanda en pabbi var þá kokkur. Fórum við þá til Þýskalands en seinna kölluðu systur mínar landið Fiskaland, héldu að það héti það því það væru allir að sigla þangað með fisk. En rosalega var gaman að sjá líkanið. Rifjuðust upp minningar. Siglingin, sjómannadagurinn, að bíða eftir pabba þegar hann kom úr siglingum eða úr veiðitúrum, þegar mamma var að baka fyrir skipið.

Og svo kom kvöldskemmtunin. Ég og dóttirin fórum einar, sonurinn var eitthvað að drepast í löppinni og bóndinn í aukavinnu. Vorum við aðallega að labba og athuga hvort við könnuðumst við einhverja. Svo þegar nær dró flugeldasýningunni fórum við nær smábátahöfninni í Grófinni því mig langaði ekki að lenda í umferðartrafík út úr bænum. Bóndinn ætlaði að vera kominn um 10 að þvottaaðstöðu SBK en sem betur fer sá ég að hann kæmist ekki að, því fólk var búið að LEGGJA BÍLUNUM FYRIR FRAMAN DYRNAR. þegar ég hringdi í hann var einn að leggja þar og hann heyrði að ég var að tala við einn bílstjóra sem ætti eftir að koma en viti menn, þessi maður horfði bara á mig , talaði við annan mann þarna og labbaði í burtu. Eins og að hann ætti þetta plan. Sumir eru svolítið einir í heiminum. Þannig að bóndinn fór á rútunni heim. En DJÖ var flugeldasýningin flott, miklu flottari en á Menningarnót í Reykjavík. Þetta sagði fólkvið mig sem býr í bænum. Bomburnar voru frábærar. Og litirnir. Ef ég kynni að mála þá væri þetta mitt aðal myndefni.  Ég er bara farin að hlakka til næstu Ljósanætur. Tel niður dagana.

 


víðförull

Já, hann Sæmundur fer ekki troðnar slóðir og kannar ný lönd. Það sem finnst gamalt hér og of mikið ekið þykir brúkhæft í öðrum löndum. Gæti þetta verið M-17 eða M302??
mbl.is Íslenskur langferðabíll í Afganistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var að koma úr miðbænum.

Var að koma úr miðbænum og mannfjöldinn, hann var mikill. Kíkti á nokkrar sýningar t.d. hjá frænda, Jens Hjelm,  og mikið og margt skoðað. Örtröð allstaðar. En þetta er ein af þessum helgum sem bannað er að missa af.
mbl.is Fjölmenni á Ljósanæturhátíðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er dauð! en hlakkar til næstu helgar!

Þá er maður byrjaður í nýju vinnunni og ég er DAUÐ! Það eru komin 3 ár síðan ég vann síðast aðeins á virkum dögum og að koma því á aftur gengur ekki alltof vel. En ég hef ekki fengið neinar kvartanir enn, sem komið er. Að koma í vinnuna klukkan 5 mín í 8 og það er ekkert kaffi til þá er dagurinn ónýtur hjá mér, mitt koffín STRAX. Ég er að keyra út vörum frá 8 til 12 og er í búðinni frá 2 til 6 og er að þrífa eftir það. Á meðan Sigrún (sú sem ég er að leysa af) er til að hjálpa mér gengur allt í þessu fína en ég verð örugglega til 8 næstu viku þegar hún tekur sér viku frí. Og fer með sendingarnar á ranga staði. Eða gleymi að skrifa nótur. Kemur bara í ljós.

Það finnst á umferðinni að ljósanótt er um næstu helgi. Lentum í dag við gangbraut þar sem heill skóli var að fara yfir og það tók sinn tíma. En mikið var gaman að sjá allar blöðrurnar. Og í kvöld þegar ég ætlaði heim gafst ég upp við að bíða eftir að beygja til vinstri á gatnamótum Hringbrautar og Vesturgötu, það var alltaf einhver bíll að þvælast fyrir mér. Þannig að ég beygði til hægri og fór krókaleiðir heim þótt það tæki lengri tíma. Ég væri örugglega ennþá að bíða á gatnamótunum. Guði sé lof að það eru að koma götuljós á þessi gatnamót.

Ég er annars ekki búin að ákveða hvað ég ætla að skoða sem er boðið til sýnis um elgina, ég ætla bara að láta veður og vind ráða.


samstarf

Þetta kallast samstarf eða var fólkið að "vinna fyrir ferðinni?" (ekki illa meint því þetta vil ég frekar sjá heldur en að lesa um rútuslys)  
mbl.is Betur fór en á horfðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta hefur þá ekki verið vitlysa hjá mér.

Þetta hefur þá ekki verið nein vitleysa hjá mér í gærkvöldi, sat inn í stofu með handavinnuna og horfði á sjónvarpið og fann kipp. Guði sé lof að ég var ekki að lesa draugasögu eins og mamma þegar hún fann fyrir skjálftanum á Akureyri hér um árið. Einmitt þegar hún var að lesa um það að draugurinn væri að koma inn um dyrnar leit hún upp og sá þá spegil sem hékk á vegg á móti henni, hreyfast. Ekki skemmtilegt að lenda í þvíWink .
mbl.is Jarðskjálftar á Reykjanesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

vonsvikin

Var að lesa það að þotan sem kemur með keppendur heim, hún losar sig við aðra farþega á Keflavíkurflugvelli en fer svo með ólimpíufarana á Reykjavíkurflugvöll!!! Og ég sem var farin að hlakka til að fara upp á braut til að hilla þá en nei, nú er búið að taka þá ánægju af manni. Því miður, ég fer ekki til Reykjavíkur að sjá þá, verð eins og aðrir LANDSBYGGÐARMENN og sé þá í SJÓNVARPINU.
mbl.is Eldri hetjur syngja fyrir þær nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ánægja

Var að tala við mömmu í gærkvöldi og sagði hún mér að hún hafi átt ánægjulega daga um síðustu helgi. Hafði hún þá hitt systir ömmu, mömmu mömmu, bræður sína (a.m.k. 4 af þeim), börn þeirra og barnabörn.  Sjaldan hef ég heyrt í mömmu svona ánægðri og eiginlega ekki síðan fyrir andlát pabba. Eitt af því sem hún sagði mér var að frændi minn yrði með ljósmyndasýningu á  Ljósanótt og þá greyp forvitnin mig. Og fór að kanna og fann hannGrin  en þarf að komast að því hvar sýningin verður. Googlaði ég nafnið hans og komst þá að því að hann er hér á mbl blogginu og núna er hann nýjasti vinur minnSmile . HÆ FRÆNDI!!!

Silfurrefir

Þá höfum við fengið nokkra silfurrefi í hópinn og mikið sló hjartað hratt þegar þeir tóku við peningunum. Ég hefði flaggað fyrir þeim ef mín blessaða fánastöng væri brúkhæf. Þá er bara um að gera að fara á miðvikudaginn upp á Reykjanesbraut og bara flauta á fullu þegar rútan þeirra keyrir framhjá. OG HELST SEM FLESTIR AÐ MÆTA, ÞEIR EIGA ÞAÐ SVO SANNARLEGA SKILIÐ!!!

 


mbl.is Íslendingar taka við silfrinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TIL HAMINGJU

Til hamingju með þennan áfanga og ég veit að þið munið gera ykkar besta í síðasta leiknum OG ÞAÐ ER ALVEG SAMA HVERNIG LEIKURINN FER, ÞIÐ VERÐIÐ ALLTAF STRÁKARNIR MÍNIR!!!!
mbl.is Íslendingar í úrslitaleikinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband