Hversu lengi....

....verður Hanna Birna borgarstjóri?  Geta verið 4 mánuðir, getur verið út þetta kjörtímabil og allt þar á milli, hver veit? Ekki ætla ég að spá einu né neinu því að stjórnmál hafa ekki höfðað til mín hingað til. Vona bara fyrir hönd höfuðborgarbúa að allt þetta vesen sé búið fram að næstu kosningum og að þá viti allir hvaða flokk þeir ætli að kjósa.


mbl.is Lyklaskipti í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

gott

Gott að þarna náðust sættir. Vonandi á þessi ungi maður ekki neina óvini sem vita hvaða hús þetta er, annars hefði hann mikið að gera í vetur. Annars er þetta ekki allt saman "krot" sem er gert, ég hef séð margat fallegt út úr þessu. En flest ljótt.
mbl.is Hreinsar veggjakrot í hálft ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

'OGEÐ

Þótt það hafi verið 1 fyrir framan þá væri þetta Ekki nógu harður dómur fyrir þetta ógeð! Hann fær að dúsa inni í helminginn af þessum dóm en stúlkan, hún þarf að vinna í sínum málum restina af sinni æfi!! Og engir peningar, sama hvað upphæðin er há, getur bætt fyrir þetta brot!!

 Ég veit um stúlku sem var nauðgað, gerandinn var ekki dæmdur því hann neitaði þótt hann hafi státað sig af þessum verknaði við vin sinn. Þá tók stórfjölskyldan sig saman og vöktuðu manninn. Það var ekki skipulögð vakt heldur hafði fólk vakandi auga þegar það sá hann og á endanum borgaði það sig því hann náðist seinna en þá fyrir annað, fyrir vörslu á dópi.

 


mbl.is Sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HHMMM

Hhmmm, hvað var ég að gera fyrir 18 árum síðan, einmitt á þessum degiWoundering? Ætli ég muni það ekki það sem restina af ævinniWink. Fyrir 18 árum síðan var ég að átta mig á því að litli bumbubúinn væri kominn í heiminn. Um klukkan 3 aðfaranótt 14. ágúst 1990. 3410 gr og 52 cm stúlka. Þennan sólarhring fæddust 3 börn, 2 stúlkur og 1 strákur.  

Svo situr maður hér og hugsar aftur hvernig þessi ár hafa verið. Bæði góð og slæm. Og mesti lærdómurinn sem við hjónin höfum fengið var þegar við gengum í gegnum ofvirkniárin. Það voru sko námsár. Og svo þegar eineltið byrjaði, ekki gott. Að mínu mati hefur hún komið glæsilega út úr þessum árum þótt vantraust og vankunnátta á fólk sé til staðar. En mín æsta ósk er að framhaldið verði henni gæfuríkt, hún á það skilið skottið að tarna.

Elsku skottið mitt, til hamingju með 18 ára afmæliðKissingKissingKissing


frost

Það hefur nú komið fyrir að maður hefur verið í sumarfríi í júní og það snjóað á mann. Og það á láglendi. Þetta er víst það sem margur erlendur ferðamaður vill lenda í, eitthvað til að segja frá þegar heim er komið.Wink
mbl.is Frostið bítur kinnar á nóttunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til lukku

Fallegt veður, fallegt par og fallegur brúðarbíll. TIL LUKKU MEÐ DAGINN.
mbl.is Brúðarbíllinn var gamall brunabíll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný vinna

Já, ég er afar heppin að vera búin að fá nýja vinnu. Fór í gær upp í Flugeldhús að ná í dótið mitt og að kveðja þá sem fyrir voru. Ég ætlaði líka að tala við yfirmenn líka en þeir eru víst í sumarfríi en einn kemur inn í dag að ég held. Ég klára þá öll mín frí, rest af sumarfríi og vetrarfrí, og byrja svo um næstu mánaðarmót hjá Sigurjónsbakaríi.

Sumarfrí 3

Jæja já, þá erum við komin heim eftir 2 vikur í hjólhýsi. Margt búið að ske. Fórum fyrst norður og gistum (samkvæmt hefðinniTounge) fyrstu nóttina á Blönduósi. Og næsta dag komið á Kópasker í BONGÓBLÍÐUCool. Og brúðkaupsdagurinn heppnaðist fullkomlega. Ég vorkenndi aumingja prestinumPouty. Hann var í sínum jakkafötum og utanyfir var hann í hempunni. Hitinn var um 25 gráður,glampandi sól inn um gluggana og svitinn lak í stríðum straumi niður andlit hans.

En brúðarhjónin voru hæst ánægð með daginn. Hvað það mættu margir og hvað fólk var ánægt. Sunnan fólkið fékk þá að vita hvernig logn erWink.

Og eins og svo oft áður þá lenti bóndinn í því að vera eitthvað tengdur matnumUndecided. Það má ekki vera neitt ættarmót, og núna brúðkaup, þá er hann beðinn um að vera "kokkur", eða að standa við grillið. Þetta getur verið svolítið þreytandi Devil.  En hann hefur víst gaman af þessu.

Við vorum á Kópaskeri í um 5 daga og allan tímann vorum við í 20-28 gráðu hita og mér tókst að brenna, gleymdi að bera á mig sólarvörnBlush. Sem betur fer var ég með aloa vera áburð og var hann óspart notaður.

Á 6. degi fórum við austur og var það svolítið mikið sjokk að fara úr 25 gráðum niður í 11 gráður, í þoku og súld. En allan tímann sem við vorum fyrir austan var þoka, smá rigning en enn minni sólAngry. Vorum á Neistaflugi í ár og varð ég fyrir miklum vonbrigðum með það í árErrm. Var auglýst að það yrði tívolí en það voru nokkrir hoppukastalar, enginn turn eða bollar. Og í brekkusöngnum var brennan búin á undan öllu öðru, átti að standa allt kvöldiðGasp. Bætti ekki úr skák að það kom dempa í restina og við ákváðum þá að labba upp á tjaldstæði þegar Ný dönsk kom á svið. Flugeldasýningin átti að byrja 11 en byrjaði rúmlega hálftíma seinna.

En það er eitt sem stendur þó uppúr eins og ALLTAF og það er brunaslönguboltinnLoL. Hann svíkur aldrei. Í ár var það Buff og Brján sem spiluðu og Gunni og Felix, eins og alltafWink, spiluðu með. Og smá tíma fengu þeir liðstyrk frá Rúnari Frey, leikara, og ég hef ekki heyrt Selmu Björns hlæja jafn dáttGrin. Það urðu ansi margir blautir, fleiri heldur enn fótboltakapparnir, því markverðirnirHalo voru ósparir að sprauta yfir áhorfendur. Við mikinn fögnuð þeirra, á grínsLoL.

Lögðum heim á leið á mánudeginum og gistum við í Skaftafelli síðustu nóttina. Á þriðjudeginum komum við svo heim og kláruðum að ganga frá öllu og þrifum hjólhýsiðWizard en við þurftum að skila því á miðvikudeginum. Og þegar bóndinn var búinn að skila því, pantaði hann það aftur fyrir næsta árWink, hann ætlar sko að fara eitthvað um næstu verslunarmannahelgi.

Það var dýrmætur farmur með okkur þegar við komum heim. Sko, fyrir utan okkur og börnin. Á Kópaskeri fékk bóndinn gamla klukku eftir frænda hans og nafna. Eru miklar minningar tengdar þessari klukku. Við þurfum að fara með hana til úrsmiðs til að kanna hvort hægt sé að koma henni í gang og að koma fyrir gleri á klukkuhurðinni. Auk þess fékk hann Nýja testamentið frá 1903.         Og hjá mömmu á Neskaupsstað náði ég loksinsBlushí tarínuna mína sem ég erfði eftir afa og ömmu, foreldra pabba. Er þetta eini gripurinn sem er til síðan þau giftu sig, fyrir um 80-85 árum.


Sumarfrí 2

Jæja, þá er ferðadagur upprunninnSmile. Búin að redda gæslu fyrir húsið og pakka inn brúðargjöfinni, pakka niður fötum og nesti reddí, það eina sem vantar er hjólhýsið og eiginmaðurinnWink. Hjólhýsið á að koma nú um hádegi  en eiginmaðurinn um 3GetLost.

Já, og svo á sonurinn afmæli í dag, 16 ára gamall. Litla barniðHalo orðið stórt, enda langt síðan hann óx móður sinni upp fyrir höfuð. Pabbi hefði orðið 78 í dag ef hann hefði lifaðSmile.

Við erum ekkert búin að ákveða neitt hvert við förum, vindar og sól ráða því, en áætlað er að við verðum fyrir norðan og austan, og Neistaflug um verslunarmannahelginaTounge.

Heyri þá í ykkur eða réttara sagt þið lesið eftir mig eftir um 2 vikur, góða skemmtun í ykkar fríiKissing


skak

Það verður þá sennilega skak og hristingur í brúðkaupinu, bara að skella tónlistinni á og svo sér jörðin um restinaWink.

Vona að þetta verði ánægjulegur dagur fyrir brúðjónin og gestina, jarðskjálftalaus.


mbl.is Jarðskjálfti í Öxarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband