21.7.2008 | 14:41
Góð helgi nýafstaðin
Síðasta helgi var ljómandi góð að langflestu leit. Á laugardeginum fór bóndinn í golf og var hann það heppinn að lenda í öðru sæti. Einn hluti verðlaunanna var gjafabréf í eina golfverslunina svo að núna getur hann fengið sér nýja golfskó, hann er búinn að ganga niður þá gömlu bókstaflega
. Og á meðan slapp ég í búðir
.
Á sunnudeginum var vaknað snemma, upp úr 6. Deginum áður hafi verið hringt í bóndann og hann grátbeðinn að taka eina rútuferð inn í Landmannalaugar því bílstjórinn sem fer þessa ferð var búinn að vera lasinn. Við mættum á svæðið og einnig hinn bílstjórinn
þannig að bóndinn var eiginlega óþarfur. En það fannst ferð handa honum og fékk ég að fara með. Fórum við til Víkur í Mýdal með stoppum á nokkrum stöðum. Reyndist dagurinn hinn ánægjulegasti
og komið seint heim, að ganga 10. Langur dagur og þreytt manneskja sem sofnaði um kvöldið
.
Það eina sem var ekki skemmtilegt um helgina var það að sonurinn hafði náð sér í sumarpestin, hausverkur, hiti, beinverkir. Og núna er dóttirin lögst í bælið. Vonandi sleppum við hin því við fáum hjólhýsið á fimmtudaginn og leggjum þá af stað. Ætti reyndar núna að vera að stytta buxur eða baka "ferðalagskökurnar" , en byrja bara á eftir
Athugasemdir
hvert á að skella sér í ferðalag? Og hvar verðið þið um verslunarmannahelgina?
Hilda (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 17:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.